Sönglað í Salz

Hér munu merkar og ómerkar fréttir sem og hugleiðingar líta dagsins ljós frá fjölskyldunni í Salzburg

fimmtudagur, maí 21, 2009

Ofnæmi.is eða dott kom !

Ég er maður líðandi stundar og kemur mér fyrst í hug það sem gerist í núinu. Ég er algerlega að drepast úr ofnæmi þessa stundina, ég lít úr um gluggann minn og það er eins og það sé þoka yfir borginni fögru, en nei. Þetta er þykkt ský frjókorna sem veltir sér liðlega yfir borgina í líðandi sveiflu og skilur alla íbúa eftir vel frævða og útúr hnerraða, eins og mig. Ég kýs að halda mig inni á svona dögum þegar plönturnar standa í fjölgunar stórræðum, allar á sama tíma. (Úffh, nefsög, hnerrar og augkláði, tár, pirringur og hiti).

Lífið hér gengur að öllu jöfnu sinn vanagang, súshigerð, picknikk ferðir, vinna, skóli, leikskóli og húsgrill með nágrönnunum en einnig er um garð genginn merkisdagur mikill en Harpa mín átti afmæli um daginn og var engu til sparað við að gera afmælisdaginn sem hátíðlegastan og stórkostlegastan ! ... öh, nú verð ég tekinn fyrir og skammaður ... Ég var sko ekki heima og gat því lítið gert og gaf henni gefin blóm þegar ég kom heim um miðjan dag 16 mai, svo allar frásagnir um hátíðarhöld og glæsileik eru stórlega ýktar og liggja varlega á línu sannleika og lygi. Við Halldóra Björg stóðum okkur nú samt afar vel í óvart ákomu, leynibragð okkar feðgina féll í góðan jarðveg og þakka ég öllum sem tóku þátt í hinum flóna lygavef með okkur. Fyrir nokkrum vikum fór ég til Munchen í því yfirskyni að hitta tónleikahaldara vegna fyrirhugaðrar tónleikaferðar Groundfloor um Bayern. En ég og Kjartan Vídó fórum að sækja afmælisgjöfina stóru sem við földum síðan vel í geymslunni fram á tilsettan dag.

Kvöldið áður en ég fór út úr bænum beið ég þar til Harpan sofnaði, læddist síðan inn til Halldóru Bjargar, sem hafði þagað yfir leyndarmálinu í 3 vikur, og vakti hana. Við læddust niður í geymslu á náttfötum og gúmmískóm og sóttum hlutinn, hann var gríðastór og þungur. Halldóra Björg valdi staðsetninguna. Síðan fór hún aftur í rúmið, gat samt ekki sofnað og stuttu síðar vaknaðu Harpa og gekk fram hjá mér og beint inn á bað.. sá ekki neitt. Snemma daginn eftir fór Harpa fyrst á fætur og hrópaði upp yfir sig, hvað er þetta, ha? , ó mæ gad, hvað er að gerast hvað ... Við Halldóra Björg spruttum á fætur og kysstum mömmu til hamingju með afmælið, gamall draumur hennar var orðinn ða veruleika, í stofunni stóð gamall, brúnn ruggustóll. Nú er hann mest noðaða húsgagnið á heimilinu og er Harpa alltaf og skilyrðist laust í fullum rétti með að reka fólk úr stólnum.

Síðan studdum við okkar land til sigurs í Júrívisjón sönglaga keppninni og uppskárum eftir því.

Þar til næst, bless og endilega kommentið smá, það er svo mikið stuð.

Nýjar myndir !

þriðjudagur, maí 05, 2009

Góð helgi !

Fyrirsögnin er algert understatement, við áttum frábæra helgi. Hún eiginlega byrjaði með smávegis súpuboði í Svartastræti þar sem Erla, Kjartan og Anna Birna þáðu okkar síðasta mataboð í þeirra setutíð í Salzburg. þau hyggjast nú hreiðra um sig í Garðabænum og veit ég að margar víðar bumbur og bragðlaukar ýmissa sælkera hér í borg koma til með að sakna maraboða þeirra og snilldar. Síðan kom fyrsti maí með "majbámhátíðum" (mai baum fest = maí trés hátíð) fjölmörgum og sóttum við eina slíka í Gross gmain (gross gmain = stóra hérað) þar sem við horfðum á unga sem aldna stunda hina fornu íþrótt mai baum fest klifur keppni. En keppnin felst i því að klifra upp tréið sem er alveg beint með engum grinum til að stíga á og meira að segja slípað slétt og pússað, á nærbuxunum einum fata, sem sagt klifrað upp á hand og fótastyrk einum saman með smá hjálp frá klístruðum bumbum keppnismanna. (Ég geri ráð fyrir að þær séu klístraðar sökum ískursins sem ómaði um keppnissvæðið þegar þeir tóku að klifra niður. Mjög skemmtileg samkoma.

Á sunnudaginn spilaði ég jazz gigg á Republic og eftir það brunu'um við eftir þjóðveginum í átt til fjalla. Keyrðum í gegnum hinn ægifagra fjallgarð Pass Lueg og stoppuðum í Werfen. Fórum upp í kastalann þar og urðum vitni að ránfuglasýningu tamdra, arna, fálka uglu og fleiri fugla sem ég þekkti ekki. Algerlega frábær skemmtun. Síðan keyrðum við áfram til St.Johan og gengum í genum skógarþykknið og runnum á lyktina að huttu einni falinni og keyptum okkur pommes (poomes = frnaskar) og bjór (þarfnast ekki þýðingar, talið nógu þekkt alþjóðlegt orð að menn ættu a skilja innihald setningarinnar eða þekkja stofn þess og geta getið sér sjálfir til um atburð þennan.)

Síðan brunuðum við heim að chilla.

Myndir á myndasíðunni.

kv H.