Sönglað í Salz

Hér munu merkar og ómerkar fréttir sem og hugleiðingar líta dagsins ljós frá fjölskyldunni í Salzburg

fimmtudagur, febrúar 22, 2007

vorið komið....???


Einn örpistill frá frúnni sem finnst svo gaman að tala um veðrið.
Hér í Salzburg er sko enginn stormur né snjór. Undanfarna daga hefur verið vorblíða og veitingastaðir í miðbænum hafa vippað út borðum og stólum eins og maður á að venjast á sumrin.... Þetta er hið besta mál og vonandi að þetta haldist bara svona fram á sumar :)

Bestu kveðjur úr sólinni í Salz
Harpan