Sönglað í Salz

Hér munu merkar og ómerkar fréttir sem og hugleiðingar líta dagsins ljós frá fjölskyldunni í Salzburg

miðvikudagur, janúar 06, 2010

Matthildur okkar er fædd !

Kæru vinir, fjölskylda, kunningjar og aðrir óþekktir lesendur.

Desember var skrítinn, vondur, uppfullur af ótta og stressi og óvæntum breytingum. Matthildur okkar fæddist með mjög alvarlegann og flókinn hjartagalla og var flutt í skyndi á hjartaspítala í Munchen til aðgerðar. Við komum hingað 10 desember og erum hér enn. Matthildur gekkst undir 6 klukkustunda opna hjartaaðgerð sem þótti heppnast vel, og batahorfur voru góðar framanaf. 26 des kom mikið bakslag í batann og hún flutt aftur í skyndi á gjörgæsludeildina. Hún barðist hetjulega og kom sér til lífs eftir mjög krítíska stund á gjörgæslunni. Þar er hún enn, í alvarlegu ástandi og óvíst með framhaldið, hver næstu skref eru veit enginn, hvorki læknar, hún né við og við bíðum bara svara tímans. Við þökkum öllum sem hafa stutt okkur í baráttunni og bendum á styrktarsíðu Matthildar Haraldsdóttir á facebook.

Kv Halli og Harpa.